Stærstu mannaparnir eru górillur. Eins og aðrir mannapar hafa þeir langa arma , lengri en fótleggina, lipran úlnlið, þumal og stórutá, sem geta gripið á móti hinum fingrunum eða tánum. Mannapar einkennast af löngum og sterkum örmum og liprum herðum sem hentar vel til þess að klifra í trjám. Þeir hafa ekki loppur né hófa heldur hendur og fætur. Þeir hafa sterkar hendur og fingur þar sem þeir ganga á fjórum fótum. Allir mannapar hafa stór höfuð og rúmgóða höfuðkúpu. Apar eru gáfaðir og með stóran heila.
Mannapar ferðast í hópum en górillur lifa fimm til fjörtíu saman í fjölskyldu hóp. Hóplífið veitir þeim góða vörn þar sem dýrin geta varið hvort annað við hættu og snúið saman til varnar. Þegar dýr ógna górilluhópum tekur foringinn sér stöðu milli fjölskyldu sinnar og óvinarsins. Apynjur verja sig með því að hrjúfa sig saman með ungum sínum og setja allt sitt traust á silfurbakinn, sem er foringinn. Einnig verja þeir sig með stórum steinum og löngum greinum. Beittar tennur simpansa geta líka verið öflugt vopn.
99% af genum okkar og simpansa eru eins. Simpansar eru skyldari okkur en górillum. Þeir eru líkir okkur þar sem þeir eru greindir , leysa vandamál, nota verkfæri og hafa samskipti sín á milli.
Meðgöngutími simpansa , górilla, bónóba og órangúta eru um átta til níu mánuðir, en meðgöngutími gibbóna eru ekki nema sjö mánuði. Kvengórillur verða kynþroska á aldrinum 7-8 ára og er það eðlilegt að þær eignist sinn fyrsta unga 10 ára. Þær geta aðeins eignast unga á fjögurra ára fresti og má þá ætla að þær eignist 5-6 unga yfir ævina.
Mannapar geta orðið allt að 50 ára gamlir en eðlilegt að þeir nái 40-45 ára aldurs. Elsti mannapinn er kvenkyns og fæddist villt en dó í dýragarði. Hún dó úr krabbameini, 55 ára gömul.