Mannapar lifa á aldinum, laufum og dýrafæðu, svo sem skordýr. Simpansar lifa reyndar á mun fjölbreyttari fæðu eins og t.d. fuglum, spendýrum, smáöpum og antílópukiðum. Órangútar hafa líka sést éta fuglsunga og íkorna. Allar rannsóknir hafa sýnt að mannapar lifa á fæðu úr jurtaríkinu, laufblöðum og ávöxtum. Górillur éta aðallega bambus en órangútar ávexti.